
: Setið á rústum gamla skálans í Gilsbakkaseli í þriðju leit. Þorvaldur Hjálmarsson Háafelli, Eyjólfur Andrésson Síðumúla, Ingibjörg Daníelsdóttir Fróðastöðum, Jón Ingimundarson Haukagili, Jóhann Oddsson Steinum, Ásbjörn Sigurgeirsson Ásbjarnarstöðum og Ólafur Guðmundsson Sámsstöðum.
Í leitum á árum áður – myndasyrpa
Myndir geyma fjársjóð minninga og heimilda frá liðinni tíð. Meðfylgjandi myndir tók Ingibjörg Daníelsdóttir á Fróðastöðum saman og sendi Skessuhorni. Flestar þeirra tók Eyjólfur Andrésson í Síðumúla. Elsta myndin er tekin fyrir árið 1945. Þarna gefur að líta myndir úr göngum þar sem bændur og búalið í uppsveitum Mýrasýslu koma einkum við sögu. Þakkarvert að myndavélar hafa fengið að fljóta með í fjárragi og leitum fyrri tíma.