
Unnur Birna Backman fer með hlutverk Elmu en þættirnir eru gerðir eftir verðlauna bókinni Marrið í stiganum eftir Evu Björg Ægisdóttur.
Tökur á sjónvarpsseríunni Elmu hefjast brátt á Akranesi
Tökur á sjónvarpsseríu byggðri á bók Evu Bjargar Ægisdóttur; Marrið í Stiganum, hefjast á Akranesi í byrjun október og er ráðgert að þær standi yfir næstu þrjá mánuði. Þáttaserían verður alls sex þættir og er framleidd af Glassriver (glassriver.is) en þættirnir verða sýndir í Sjónvarpi Símans næsta haust. Þættirnir munu bera nafnið Elma eftir aðalsöguhetju bókarinnar, lögreglukonunni Elmu Jónsdóttur, sem snýr aftur í heimabæ sinn eftir persónulegt áfall. Leikstjórar í seríunni eru Katrín Björgvinsdóttir og Þóra Hilmarsdóttir en um skrif sér Karen Björg Eyfjörð Þorsteinsdóttir ásamt Elísabetu Hall og Urði Egilsdóttur. Framleiðandi er Andri Freyr Hlynsson.