Fréttir
Finnbjörn A Hermannsson forseti ASÍ og Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB.

Miðstjórn ASÍ mótmælir skerðingu atvinnuleysistrygginga

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) mótmælir harðlega þeim áformum stjórnvalda að skerða atvinnuleysistryggingar og skorar á ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að láta aðra en atvinnulausa greiða fyrir sparnaðartillögur ríkisstjórnarinnar. „Bein réttindaskerðing er ekki hagræðing eða ráðdeild í ríkisfjármálum,“ segir í ályktun sambandsins. „Umrædd áform bætast nú við miður ígrunduð áform ríkisstjórnarinnar um afnám jöfnunarframlags vegna örorkubyrði sem leiðir til beinnar skerðingar réttinda örorku- og ellilífeyrisþega í lífeyrissjóðum. Atvinnulausir og aldraðir eru ekki breiðu bökin sem sanngjarnt er að beri byrðarnar af hagræðingu í ríkisrekstri.“