Fréttir
Störfum á vegum ríkisins fjölgar meira í Reykjavík en nemur hlutfalli íbúa sem þar eru búsettir.

Störfum á vegum ríkisins fjölgaði mest á höfuðborgarsvæðinu

Stöðugildi á vegum ríkisins voru 29.054 um síðustu áramót. Þar af voru 18.802, eða 65% starfa, skipuð af konum og 10.252 (35%) af körlum. Á árinu 2024 fjölgaði stöðugildum hins opinbera um 538 á landsvísu eða um 1,9%. Flest stöðugildi á vegum ríkisins eru staðsett á höfuðborgarsvæðinu, enda er meirihluti landsmanna búsettur þar. Hins vegar er hlutfall stöðugilda á höfuðborgarsvæðinu nú 70%, en það er hærra en það hlutfall landsmanna sem þar býr sem er nú 64%.