
Sjávarútvegssýningin hefst á morgun í Laugardalshöllinni
Sjávarútvegssýningin „Sjávarútvegur / Iceland fishing expo 2025“ verður opnuð á morgun í Laugardalshöllinni og stendur fram á föstudag. Sýningin er sú fjórða og stærsta til þessa, var síðast haldin fyrir þremur árum. Um skipulagningu sér sýningarfyrirtækið Ritsýn sf. Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri þess segist finna fyrir miklum áhuga á sýningunni bæði hér innanlands og víða um heim.
„Sýningin stækkar með hverju árinu og fyllir nú öll sýningarsvæði Laugardalshallar. Hún verður að þessu sinni afar fjölbreytt og áhugaverð. Á henni eru allar tegundir af fyrirtækjum sem þjóna íslenskum sjávarútvegi. Gestir koma til með að sjá allt það nýjasta í hátækniútbúnaði er tengist fiskvinnslu og útgerð. Þá er mikið af nýjum fyrirtækjum að koma inn með sýningarbása og ber meðal annars að nefna fyrirtæki sem þjóna fiskeldinu bæði á sjó og landi,“ segir Ólafur í samtali við Skessuhorn.
„Sýningin Sjávarútvegur / Iceland fishing expo hefur einnig verið afar ánægjulegur mótsstaður þeirra sem koma að eða hafa áhuga. Á síðustu sýningu árið 2022 komu um fjörutíu þúsund gestir allsstaðar að af landinu. Við búumst líka við miklum fjölda í ár og einnig finnum við fyrir auknum áhuga erlendra aðila víða um heim.“
Hanna Katrín Friðriksson mun opna sýninguna kl. 13 á morgun. Fyrir almenning verður sýningin opin kl. 14 til 19 á morgun og frá kl. 10-18 á fimmtudag og föstudag.