
Bygg tilbúið til þreskingar í Ásgarði.
Kornskurður í fullum gangi
Veðráttan á Vesturlandi í sumar hefur verið afar hagfelld þeim bændum sem rækta korn. Raunar má segja það sama um alla landshluta. Áætlað er að sáð hafi verið korni í fjögur þúsund hektara á landinu í vor og er búist við ágætri uppskeru, víða frá fjórum og upp í sjö tonn af hektara. Kornið er meðal annar snýtt til eldis í nautgripa- og svínarækt.