Helgi gefur út bókina Bóhem úr Bæjarsveit

Bóhem úr Bæjarsveit er heiti bókar sem Helgi Bjarnason blaðamaður hefur tekið saman og gefur nú út, en hún er þriðja í ritröð sem nefnd er; „Sagnaþættir úr Borgarfirði“. Í henni er tekin saman saga eftirtektarverðs einstaklings úr samfélagi Borgarfjarðar og Reykjavíkur í upphafi tuttugustu aldar. Þorsteinn Björnsson, guðfræðingur, skáld og rithöfundur, kenndi sig ávallt við fæðingarstað sinn, Bæ í Borgarfirði. Hann var ákaflega sérstakur maður sem margar sögur eru til af.

„Þorsteinn úr Bæ var stórgáfaður maður en vegna skapgerðarbresta náði hann ekki að nýta hæfileika sína til fulls. Hann komst í gegn um nám, að vísu á nokkuð brokkgengan hátt, með miklum stuðningi foreldra sinna sem voru auðugir bændur á þess tíma mælikvarða. Hann fékk hins vegar aldrei embætti sem hæfði menntun hans vegna þess að yfirvöld kirkjunnar og söfnuðir treystu honum ekki til að vera leiðtogi safnaðarstarfs,“ segir Helgi.

En gefum Helga orðið um Bóheminn úr Bæjarsveit: „Þorsteinn var sérstakur í háttum og kaus að lifa ekki hefðbundnu borgaralífi heldur fremur sem bóhem. Hann átti lengi heimili í Bæ en taldi fyrir neðan virðingu sína að vinna hefðbundin sveitastörf. Hann bjó einnig í Reykjavík við misjafnan kost, í áratug í Kanada og Bandaríkjunum og í nokkur ár í Þýskalandi en þangað hafði hann verið kostaður af vinum til að leita að auðugri stríðsekkju til að sjá fyrir honum. Síðustu árin var hann mikið á flakki á milli frændfólks og vina í Borgarfirði. Hann lést á bæ einum og spunnust af andlátinu ýmsar sögur, eins og af öllu því sem hann tók sér fyrir hendur í lifanda lífi.

Hann helgaði líf sitt ritstörfum og gaf út fáeinar bækur sem fengu misjafnar viðtökur. Þótti efni þeirra ekki við alþýðuskap. Þó er viðurkennt að margt gott megi þar finna. Þorsteinn var síhugsandi um heimspeki og skrifaði margt en megnið af ævistarfi hans komst aldrei fyrir sjónir almennings og verður ekki úr þessu.

Ótrúlega margar sögur eru sagðar af Þorsteini og í þessu riti er ævi hans rakin eftir gögnum hans, bréfum og öðrum heimildum og einnig eru birtar frumsagðar sögur af honum og rifjaðar upp sögur sem aðrir hafa sagt. Margt er þar athyglisvert enda lifði Þorsteinn Björnsson ævintýralegu lífi.“

Rit þetta er þriðja og síðasta bindi „Sagnaþátta úr Borgarfirði“ sem Helgi hefur tekið saman. Bókin kostar 5.000 krónur og fæst einungis hjá höfundi. Hægt er að panta hana með orðsendingu í skilaboðum á messenger á Facebook eða á netfangið helgibjarna@gmail.com eða þá í síma 669-1310. Greiðslu má leggja inn á reikning 537-14-6215, kennitala 140753-7699. Þær pantanir úr Borgarfirði, af höfuðborgarsvæðinu og nágrenni sem berast fyrir 20. september 2025 verða keyrðar heim til kaupenda, án endurgjalds. Póstburðargjald vegna bóka sem senda þarf í pósti er 630 kr.

Bókin er í kiljuformi, 256 blaðsíður að stærð og er prýdd fjölda ljósmynda, meðal annars sögulegra. Við sögu koma 329 menn og konur.