Fréttir
Jóhann með laxinn. Ljósm. aðsend

Stórlax úr Miðá í Dölum

Jóhann Unnar Sigurðsson veiðimaður lenti í skemmtilegu ævintýri síðastliðinn föstudagsmorgun þegar hann setti í og landaði 105 cm laxi í Miðá í Dölum. Samkvæmt okkar bókum er þetta stærsti lax sem veiðst hefur í sumar, en nú er einmitt tími stórhænganna að ganga í garð. Laxinn veiddi Jóhann í Hamarshyl og tók hann svarta Frances #14. Baráttan stóð yfir í um tvær klukkustundir.