Fréttir
Svipmynd úr safni frá Bjargi.

Gengið með leiðsögn um byggðir álfa og huldufólks

Næstkomandi sunnudag klukkan 16 hefst gönguferð með leiðsögn um byggðir álfa og huldufólks í landi Bjargs í Borgarnesi. Þar mun Bryndís Fjóla Pétursdóttir, garðyrkjufræðingur, heilari, Völva og stofnandi og eigandi Huldustígs ehf. leiða gönguna og segja frá huldufólkinu, álfunum og hafmeyjunum sem dvelja á þessu svæði. „Gönguferðin er um ein og hálf klukkustund og hefst við innganginn í Bjargsskóg við enda Arnarkletts. Gengið verður hægum skrefum um skógarstíg og tún, áð á vel völdunum stöðum þar sem við stöldrum við í þögn og skynjum okkur í samveru með fleiri víddum,“ segir í tilkynningu.