
Talsvert um óhöpp og slys í liðinni viku
Vinnuslys varð í vikunni sem leið á iðnaðarsvæðinu á Grundartanga. Maður klemmdist, slasaðist á hendi og var fluttur undir læknishendur. Bílvelta varð á Uxahryggjavegi. Þar voru erlendir ferðamenn á ferð en þá sakaði ekki en bifreið þeirra hafnaði utan vegar og á hvolfi. Bílvelta varð við Hraunhreppsveg, einnig án slysa á fólki. Þá hafnaði bifreið inn í garði í Dalasýslu. Ekki urðu slys á fólki en ökumaður bifreiðarinnar er grunaður um ölvun við akstur.