
Innkalla súpu vegna aðskotahlutur
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu Mexíkó súpu Krónunnar vegna aðskotahlutar sem fannst í einni sölueiningu. Fyrirtækið hefur innkallað súpuna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Eingöngu er að verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
Vörumerki: Krónan
Vöruheiti: Mexíkósk kjúklingasúpa
Geymsluþol: Best fyrir 17.09.2025
Nettómagn: 1 l
Framleiðandi: Icelandic Food Company ehf., Vatnagörðum 6, 104 Reykjavík
Framleiðsluland: Ísland
Dreifing: Verslanir Krónunnar um land allt.