Fréttir
Frá afhendingu umhverfisviðurkenninga. F.v. Birkir Snær Guðlaugsson formaður menningar- og markaðsnefndar, Björgvin Helgason og Dagný Hauksdóttir í Eystra-Súlunesi, Kristján Karl Hilmarsson og Brynhildur Bjarnadóttir í Hlíðarbæ 18 og Elín Ósk Gunnarsdóttir sem sæti á í umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd. Ljósmyndir: Skessuhorn/ki

Umhverfisviðurkenningar Hvalfjarðarsveitar 2025

Á Hvalfjarðardögum um liðna helgi veitti sveitarfélagið viðurkenningar fyrir snyrtilegt bændabýli og lóð. Umhverfisviðurkenning Hvalfjarðarsveitar var endurvakin að þessu sinni eftir nokkurra ára hlé en hún er hvatning til íbúa að hugsa vel um nærumhverfi sitt og veita þeim viðurkenningu sem skara framúr í snyrtimennsku og umhirðu garða sinna eða býlis.

Umhverfisviðurkenningar Hvalfjarðarsveitar 2025 - Skessuhorn