Fréttir

Laga í dag hvinrendur norðan Hvalfjarðarganga

Í dag, mánudaginn 18. ágúst kl. 9-12, eru fræstar hvinrendur norðan Hvalfjarðarganga á vegarkafla sem var malbikaður fyrr í sumar. Framkvæmdasvæðið er stutt og verður umferð stýrt framhjá. Búast má við lítils háttar umferðartöfum við framkvæmdasvæðið, að sögn verktakanna sem eru frá Colas Ísland. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.“

Laga í dag hvinrendur norðan Hvalfjarðarganga - Skessuhorn