
Skrifað var undir samninginn síðdegis í gær á Vatnasafninu í Stykkishólmi. F.v. Ragnar Sæmundsson formaður stjórnar SSV, Alma Möller heilbrigðisráðherra, Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri HVE og Páll S Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV. Ljósm. Skessuhorn/sá
Átak til að laða heilbrigðisstarfsólk að Vesturlandi
Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) skrifuðu í gær undir samning sem hefur það megin markmið að auka mannauð í landshlutanum og gera starfsstöðvar HVE og búsetu á Vesturlandi að eftirsóknarverðari valkosti fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Viðstödd undirrituna var Alma Möller heilbrigðisráðherra. Fram kemur í samningnum að lykilatriði í byggðastefnu stjórnvalda á Íslandi er búsetufrelsi; að fólk geti valið sér búsetu þar sem það sjálft kýs.