Fréttir

Eldislax er að veiðast í Haukadalsá

Fiskurinn á meðfylgjandi mynd var veiddur í Haukadalsá í Dölum í gær. Fiskurinn er augljóslega eldislax. Það má meðal annars sjá á sporði og aflöguðum neðri kjálka. Hópurinn sem var við veiðar í ánni landaði að minnsta kosti þremur öðrum löxum svipuðum að stærð. Samkvæmt lýsingum af staðnum er áin; „full af fiski“ neðarlega, 80 til 90 cm stórum. Engar líkur eru á göngu náttúrulegra alinna stórlaxa á þessum tíma í ágúst. Allt bendir því til að þessi fiskur hafi sloppið úr sjókvíaeldi.

„Við biðjum veiðimenn um að vera á sérstöku varðbergi og sleppa alls ekki laxi sem lítur svona út, heldur drepa hann og skila til erfðagreiningar hjá Hafrannsóknastofnun. Við biðjum ykkur líka um að deila þessari frétt sem víðast. Gríðarlega mikilvægt er að ná sem flestum svona fiskum úr ánum. Við höfum haft samband við MAST, Fiskistofu og Hafrannsóknastofnun og fengið staðfest að ekkert strok hefur verið tilkynnt. Enginn vafi leikur hinsvegar á að fiskurinn á myndinni er eldislax,“ segir í tilkynningu.