Fréttir

Malbika hluta Borgarbrautar í Borgarnesi

Á morgun, þriðjudaginn 12. ágúst, stefnir Colas á að fræsa og malbika 540 metra langan kafla á Borgarbraut í Borgarnesi. Verður umferðarstýring framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði verður lækkaður og viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. meðfylgjandi merkingaráætlun. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 18:00 til kl. 06:00 miðvikudagsmorgun 12. ágúst. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum,“ segir í tilkynningu.

Malbika hluta Borgarbrautar í Borgarnesi - Skessuhorn