
Tónleikar í Akranesvita á morgun
Verkið 'dwelling' eftir Masaya Ozaki og Lilju Maríu Ásmundsdóttur verður flutt í Akranesvita á morgun, laugardaginn 16. ágúst kl. 18:00. Þau fá til liðs við sig flautuleikarann Berglindi Maríu Tómasdóttur, klarínettleikarann Bergþóru Kristbergsdóttur og víóluleikarann Þórhildi Magnúsdóttur.