Stjarnan og KR hófu leik á mótinu á einum af fimm völlum sem keppt verður á. Ljósmyndir: mm

Sex hundruð unglingar á nýju knattspyrnumóti um helgina

Gatorademótið, nýtt knattspyrnumót fyrir 13–14 ára drengi og stúlkur, hófst klukkan 11 í dag á íþróttasvæðinu á Jaðarsbökkum á Akranesi. Knattspyrnufélag ÍA heldur mótið með stuðningi Ölgerðarinnar. Þátttakendur eru tæplega 600 talsins. Spilað er á fimm völlum í dag, morgun en mótinu lýkur svo á sunnudaginn með úrslitaleikjum. Í fyrstu leikjum mótsins í dag tóku liðsfélagar meistaraflokks ÍA að sér dómgæslu og fórst það vel úr hendi. ÍATV mun sýna beint frá úrslitaleikjum á sunnudaginn, taka viðtöl við leikmenn fyrir og eftir leiki og kynna liðin líkt og gert er í Bestu deildinni og þjóðsöngurinn verður að sjálfsögðu spilaður.

„Ekki verður annað sagt en að stemningin verði á heimsmælikvarða,“ segir í Ingimar Elí Hlynsson framkvæmdastjóri KFÍA. „Við erum gríðarlega spennt að taka á móti þessum nýja aldurshópi á knattspyrnumóti á Akranesi. Skagamenn hafa verðskuldað getið sér gott orðspor þegar kemur að metnaðarfullum íþróttaviðburðum og við hlökkum til að bæta einum glæsilegum við í safnið nú um helgina. Við hvetjum bæjarbúa til að mæta á svæðið, fylgjast með frábærri knattspyrnu og taka virkan þátt í því að skapa jákvæða og hlýlega stemningu – rétt eins og góðir gestgjafar gera best,“ segir Ingimar Elí.

Þátttakendur gista í Grundaskóla þar sem einnig verður mötuneyti á meðan á mótshaldi stendur. Að auki verður líf og fjör á tjaldsvæðinu við Byggðasafnið í Görðum þar sem margir gestir dvelja. Í kvöld fá krakkarnir innblástur frá Kristjáni Hafþórssyni sem heldur fyrirlestur um jákvæðni, hugrekki og valdeflingu. Á laugardagskvöldinu verður svo ball í Grundaskóla þar sem HubbaBubba og Maron Birnir koma fram.

Leikmenn meistaraflokks ÍA tilbúnir í dómarastörfin og sýndu ljósmyndara spjöldin!

Ingimar Elí Hlynsson framkvæmdastjóri KFÍA er hér að undirbúa dómarana fyrir störf þeirra.

Sex hundruð unglingar á nýju knattspyrnumóti um helgina - Skessuhorn