Á þjóðveginum við Hafnarfjall föstudaginn 4. júlí en um þá helgi var mest umferð um vegi Vesturlands á árinu. Ljósm. mm

Mest umferðaraukning á Vesturlandi í júlí

Umferð á Vesturlandi í nýliðnum júlí jókst um 6,4% ef miðað er við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Vegagerðinni. Samdráttur varð á landinu öllu um 0,1% á milli mánaða á sama tíma og munar þar mestu um 5,8% samdrátt sem varð í umferð á höfuðborgarsvæðinu. Í öðrum landshlutum jókst umferðin nokkuð og mest á Vesturlandi 6,4% eins og áður sagði. Ef horft er til umferðarinnar frá áramótum hefur hún aukist um 5% á Vesturlandi en 1,2% á landinu öllu.