
Kjörstjórn gerir tillögu að fyrirkomulagi sameiningarkosninga
Sameiginleg kjörstjórn Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hefur lagt fram tillögur til sveitarfélaganna um framkvæmd íbúakosninga þar sem ræðst hvort sveitarfélögin Borgarbyggð og Skorradalshreppur sameinist. Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna lagði til í skilabréfi sínu til sveitarstjórnanna að atkvæðagreiðsla um sameininguna yrði á tímabilinu 5.-20. september nk. Í framhaldinu var skipuð sameiginleg kjörstjórn sem nú, eins og áður sagði, hefur skilað tillögum sínum.