
Laxateljarar í ám á Íslandi.
Engir strokulaxar í myndavélateljurum en þrjátíu við veiðar og rekköfun
Engir strokulaxar greindust í myndavélateljara 13 áa á landinu árið 2024. Þrjátíu strokulaxar komu hins vegar fram við veiðar og rekköfun. Þetta kom fram í skýrslu Hafrannsóknarstofnunar um vöktun á áhrifum sjókvíaeldis á villta laxastofna á Íslandi.