Fréttir
Vindur framan af degi verður norðvestan stæður og mun gosmóðan fara yfir sunnanvert landið framan af degi.

Enn gýs úr einum gíg

Gosvirkni við Sundhnjúksgíga hefur verið stöðug í nótt, að sögn Veðurstofunnar. Áfram gýs úr einum gíg og hraun rennur til austurs í Fagradal. Seinnipartinn í gær og fram á kvöld mældist gosmóða á suðvestur- og suðurhluta landsins. Í dag mun gasmengun berast til austurs og norðaustur og gæti hennar orðið vart á Suðurlandi í dag og á höfuðborgarsvæðinu í kvöld.

Enn gýs úr einum gíg - Skessuhorn