
Strandveiðar fluttar til innviðaráðuneytisins
Ákveðið hefur verið að gera breytingar á forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Byggðakerfið, sem felur í sér strandveiðar, byggðakvóta o.fl., verður flutt frá atvinnuvegaráðuneytinu yfir á málefnasvið innviðaráðuneytisins, sem jafnframt er ráðuneyti byggðamála,“ segir í tilkynningu sem var að berast frá Stjórnarráðinu. „Breytingin var rædd og samþykkt á fundi ríkisstjórnar 16. júlí sl. Forseti Íslands hefur undirritað úrskurðinn sem hefur þegar tekið gildi.