Fréttir
Sigurður Grétar á Mjallhvíti tók fram sjóstöng í morgun. Ljósm. Hjálmar Jónsson

Foxillir strandveiðimenn fóru í samstöðusiglingu í morgun

Nokkur hluti strandveiðiflotans lagði úr höfn víða um landið klukkan 8 í morgun til þess að sýna samstöðu og mótmæla á táknrænan hátt stöðvun strandveiða í gær. Þannig mótmæltu strandveiðisjómenn t.d. í Ólafsvík, Grundarfirði og Stykkishólmi, samkvæmt heimildum Skessuhorns. Frá Akranesi héldu nokkrir bátar úr höfn en á þriðja tug báta hafa verið gerðir út þaðan í sumar til veiðanna.

Foxillir strandveiðimenn fóru í samstöðusiglingu í morgun - Skessuhorn