Fréttir
Við undirritun samkomulagsins. Frá vinstri: Stefán Broddi Guðjónsson, Guðmundur Sigurðsson, Gunnar Gauti Gunnarsson, Skúli G Ingvarsson, Jakob Jónsson og Kristín Anna Stefánsdóttir. Mynd: Þórunn Unnur Birgisdóttir.

Samkomulag um bætur Borgarbyggðar til Fornbílafjelags

Borgarbyggð og Fornbílafjelag Borgarfjarðar hafa náð samkomulagi um uppgjör á leigusamningi sín á milli. Borgarbyggð greiðir fornbílafélaginu 14 milljónir króna og úthlutar félaginu tveimur lóðum. Upphaf málsins má rekja til leigusamnings milli sveitarfélagsins og fornbílafélagsins frá árinu 2011 sem síðar tók breytingum á árunum 2015 og 2018. Samningurinn fól í sér leigu fornbílafélagsins á gærukjallara og síðar einnig fjárrétt gamla sláturhússins í Brákarey í Borgarnesi. Samningurinn var óuppsegjanlegur til árins 2035.

Samkomulag um bætur Borgarbyggðar til Fornbílafjelags - Skessuhorn