
Hljómsveitin Brek spilar í Hallgrímkirkju á sunnudaginn
Næstu sumartónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ verða sunnudaginn 13. júlí kl. 16. Þá mun hljómsveitin Brek flytja fjölbreytta tónlist; frumsamda og þjóðlög, jazz og popp. Þau leggja mikla áherslu á texta á íslensku og vilja skapa sérstaka stemningu með flutningi sínum.