Myndin var tekin í vor á landfyllingunni innan við bryggjuna á Miðsandi í Hvalfirði. Þar hafði Röst sjávarrannsóknasetur þá sett upp aðstöðuhús. Ljósm. mm

Leyfi til litarefnarannsóknar í Hvalfirði í skoðun

Utanríkisráðuneytið hefur nú til skoðunar endurupptökubeiðni frá Röst sjávarrannsóknarsetri ehf. um leyfi til vísindarannsókna í Hvalfirði. Líkt og kom fram í fréttum Skessuhorns sótti Röst á sínum tíma um rannsóknarleyfi til íblöndunar vítissóta í Hvalfjörð. Var rannsókninni ætlað að kanna hvort auka mætti basavirkni sjávar á litlu svæði. Verkefnið hlaut afar blendin viðbrögð íbúa við fjörðinn og á endanum var það utanríkisráðuneytið sem hafnaði þeirri beiðni 9. maí. Fyrirtækið sendi ráðuneytinu endurupptökubeiðni 30. maí þar sem farið var fram á að umsóknin yrði endurupptekin að öllu leyti eða að hluta.