
Um vindorkuver í Garpsdal segir í kynningu EM Orku: „Vindorkugarður í Garpsdal mun vera 11,3 milljarða króna fjárfesting inn í íslenska orkugeirann og bjóða upp á heimsklassa afturkræfan orkukost til mæta vaxandi orkuþörf Íslands. Hagur sveitarfélagsins felur í sér verulegan fjárfestingu í innviðauppbyggingu, atvinnusköpun og 465 milljóna króna samfélagssjóð sem mun standa íbúum Reykhólahrepps til boða. Beinar skatttekjur til íslenska ríkisins eru áætlaðar meira en 5,2 milljarðar króna yfir líftíma verkefnisins.“
Leggur til að vindorkugarður í Garpsdal fari í nýtingarflokk
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, leggur til að virkjunarkosturinn Garpsdalur í Reykhólahreppi verði settur í orkunýtingarflokk rammaáætlunar. Tillaga ráðherra hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda en með henni er lögð til breyting á tillögu verkefnisstjórnar verndar- og orkunýtingaáætlunar sem lagði til við ráðherra í maí síðastliðnum að allir tíu vindorkukostirnir í 5. áfanga rammaáætlunar færu í biðflokk. Er þetta í fyrsta skipti sem ráðherra leggur til þá breytingu á tillögu verkefnisstjórnar að virkjunarkostur fari í nýtingarflokk.