
Frá Eiríksstöðum. Ljósm. úr safni
Handritahátíð á Eiríksstöðum um næstu helgi
Helgina 12. og 13. júlí næstkomandi er helguð sögnum og handritum á Eiríksstöðum í Haukadal. Á dagskrá er sitthvað fyrir alla, jafnt unga sem aldna; leikir, sögur, hægt er að skoða og sjá, enda verða mörg járn í eldinum þessa helgi. Sútarar, bókasafnarar, prestar, sögufólk og fleiri leggja leið sína á Eiríksstaði þessa helgi til að fræða og skemmta gestum og saman verður reynt við að komast nær svörum við því hvernig sagnaarfur okkar var gerður.