
Gul viðvörun vegna suðaustan hvassviðris í dag
Veðurstofan bendir á að í dag orsakar lægð hvassviðri um vestanvert landið. Gul viðvörun er í gildi frá klukkan 15 í dag við spásvæðin Breiðafjörð og Faxaflóa - og fram á nótt. Á Breiðafjarðarsvæðinu verður suðaustan 10-18 m/s með vindhviður að 25-30 m/s á Snæfellsnesi. Við Faxaflóa er spáð suðaustan 8-15 m/s með vindhviður að 25 m/s við fjöll. Við þessar aðstæður getur verið varasamt að vera á ferð á ökutækjum sem eru viðkvæm fyrir vindi, t.d. húsbílum og bílum með aftanívagna. Vegagerðin bendir á að til dæmis getur orðið varasamt að vera á ferð á norðanverðu Snæfellsnesi en einnig við Hafnarfjall og á Kjalarnesi. Þá má benda á þurrt hey á túnum gæti hæglega fokið við þessar aðstæður.