
Flaggað var 15. mars þegar sperrurnar voru komnar á hafnarhúsið. Ljósm. úr safni/ tfk
Auknar tekjur hafnarsjóðs
Landaður afli í Grundarfjarðarhöfn það sem af er árinu eru 9.986 tonn, eða 16,3% meiri en á sama tíma í fyrra. Þetta kom fram á fundi bæjarráðs í síðustu viku. Bókað er að tekjur af komum skemmtiferðaskipa eru um sjö milljónum króna hærri nú og heildar tekjur hafnarsjóðs, þ.e. hafnargjöld og þjónustugjöld, eru um 19 milljónum króna hærri en þau voru á sama tíma í fyrra. Rekstrargjöld eru um sjö milljónum krónum hærri. Þá var einnig farið á fundinum yfir áfallinn kostnað við nýbyggingu þjónustuhúss við hafnarhúsið, sem tekið var í notkun í vor. Húsið reyndist 20 milljónum króna dýrara en áætlað hafði verið, en auknar tekjur af starfsemi hafnarinnar eiga að mæta þeirri hækkun.