Akraneskaupstaður þrýstir á styttingu leikskóladvalar með lækkun og hækkun gjalda

Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum á miðvikudaginn tillögur skóla- og frístundaráðs um breytingu á leikskólagjöldum. Breytingin veitir afslætti á bilinu 25-35% til þeirra er dvelja sjö tíma eða styttra en hækkar umtalsvert kostnað þeirra er dvelja lengur en átta tíma eða um allt að 40%. Gjaldskrá utan hefðbundins dagvinnutíma þrefaldast í verði. Rúmlega 400 börn nýta dvöl á þeim tíma. Breytingin tekur gildi 1. ágúst næstkomandi. Með breytingunni bætist Akraneskaupstaður í hóp fleiri sveitarfélaga sem mæta samningsbundinni styttingu vinnutíma starfsfólks með því að þrýsta á styttingu dvalar barna á leikskólum í stað þess að fjölga starfsfólki. Borgarbyggð fór á dögunum þá leið að gera dvöl barna að sex stundum á dag gjaldfrjálsa en Akraneskaupstaður setur upp afsláttarkerfi sem ætlað er að ná sömu markmiðum.

Akraneskaupstaður þrýstir á styttingu leikskóladvalar með lækkun og hækkun gjalda - Skessuhorn