Fréttir
Björgunarskipið Vörður II á Patreksfirði.

Strandveiðibátur sökk

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Vestfjörðum voru kallaðar út á tólfta tímanum í morgun eftir að strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni kemur fram að skipstjóri fiskibáts sem var staddur í grenndinni hafi haft samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og tilkynnti um að báturinn væri sokkinn og að einn maður væri í sjónum. Þyrla Landhelgisgæslunnar og áhöfnin á björgunarskipinu Verði voru kallaðar út á mesta forgangi. Þá voru öll skip á svæðinu beðin um að halda á staðinn. Áhöfnin á björgunarskipinu var fyrst viðbragðsaðila á vettvang og náði manninum úr sjónum. Hann var fluttur með björgunarskipinu til Patreksfjarðar. Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Vestfjörðum og rannsóknarnefndar samgönguslysa.

Strandveiðibátur sökk - Skessuhorn