
Jóhann Páll Jóhannsson klippir á borðann en honum til aðstoðar voru Björn Jónsson fyrrverandi rekstrarstjóri Vegagerðirnar og Sigrún Ágústsdóttir forstjóri. Ljósm. af
Ráðherra opnaði endurbættan Dritvíkurveg
Síðastliðinn laugardag var formleg opnun á endurbættum Dritvíkurvegi á Snæfellsnesi. Við það tilefni var mikið um gestagang og veitingar bornar á borð í Þjóðgarðinum. Ragnheiður Sigurðardóttir, sem er nýráðin þjóðgarðsvörður, bauð gesti og gangandi velkomna og Sigrún Ágústsdóttir forstjóri Náttúruverndarstofnunar ávarpaði samkomuna. Kristinn Jónasson bæjarstjóri hélt sömuleiðis ávarp áður en Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra hélt ræðu. Það var svo ráðherra sem klippti á borðann og naut liðsinnis Björns Jónssonar fyrrverandi rekstrarstjóra Vegagerðirnar og Sigrúnar Ágústsdóttur. Að vígslu lokinni var boðið uppá gönguferð með hátíðarívafi niður á Djúpalónssand.