
Góð stemning við upphaf Brákarhátíðar og Hinsegin hátíðar Vesturlands – syrpa
Formleg dagskrá Brákarhátíðar í Borgarnesi og Hinsegin hátíðar Vesturlands hófst í gær. Þá fór m.a. fram opna Borgarnesmótið í frisbí golfi og sundlaugardiskó var í lauginni í boði Arion banka. Leikhópurinn Lotta var einnig með sýningu á Hróa Hetti í Skallagrímsgarði. Dagskráin heldur síðan áfram í dag, þar sem m.a. verður Regnbogamessa, fjör í Brákarey og Hinsegin Barsvar. Á laugardaginn veðrur dögurður, ræst í Hafnarfjall Ultra, Gleðiganga, loppumarkaður og endað á balli í Hjálmakletti. Nánar má lesa um dagskrána í Skessuhorni, FB síðu hátíðarinnar og víðar. Blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni í gær og fangaði stemninguna sem var ágæt í mildu og góðu veðri í Borgarnesi. Við leyfum myndum að tala sínu máli.