Fréttir
Björn Leifsson, Hafdís Jónsdóttir, Haraldur Benediktsson og Líf Lárusdóttir undirrita samninginn.

Ný líkamsræktarstöð WorldFit Ægir opnar í október á Akranesi

Í dag var skrifað undir samning milli Akraneskaupstaðar annars vegar og Lauga ehf. hins vegr, sem á og rekur World Class líkamsræktarstöðvar víða á landinu, um leigu á íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum ásamt því rými sem hýst hefur líkamsræktarstöðina í sömu húsakynnum fram til þessa.