Fréttir
Birgir Þórisson tónlistarmaður er eigandi Harmonía-Samhljóms tónlistarfræðslu. Ljósm. úr safni Skessuhorns

Harmonía-Samhljómur tónlistarfræðslu hlýtur styrk úr Lóu

Nýsköpunarverkefnið Harmonía-Samhljómur tónlistarfræðslu á Akranesi hlaut styrk að fjárhæð 7,5 milljónir króna úr sjóðnum Lóu sem styrkir nýsköpunarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Harmonía er hugbúnaður sem sameinar kosti staðkennslu og netkennslu í tónlist á skapandi hátt fyrir kennarann, nemandann og tónlistarskólann. Hugbúnaðurinn heldur utan um allt skipulag jafnt fyrir stóra skóla eða einyrkja sem eru að fast við tónlistarkennslu. „Harmonía hefur einfaldleika að markmiði- hún er myndræn og skemmtileg í notkun“ segir í tilkynningu frá Lóu. Fram kemur að aðeins eitt verkefni frá Vesturlandi hlaut styrk að þessu sinni. Það er Birgir Þórisson tónlistarmaður á Akranesi sem stendur að Harmonía.