
Skoðanamunur í hreppsnefnd Skorradalshrepps
Hreppsnefnd Skorradalshrepps hefur samþykkt að fela samstarfsnefnd um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar að kynna fyrir íbúum hreppsins tillögu sömu nefndar um sameiningu sveitarfélaganna og að kosið yrði um sameiningartillöguna í september. Jafnframt samþykkti hreppsnefndin tillögu um að kosningaaldur yrði miðaður við 16 ár í stað 18 ára í hefðbundnum sveitarstjórnarkosningum.