Fréttir
Hér má sjá fjórbýlishúsin þrjú sem verið er að byggja fyrir Brák íbúðafélag. Lengst til hægri er svo fjórða fjórbýlið sem selt verður á almennum markaði. Ljósm. Stykkishólmur

Víða framkvæmdir í gangi í Stykkishólmi

Í Helstu fréttum, vefriti Sveitarfélagsins Stykkishólms, kemur fram að víða eru framkvæmdir í sveitarfélaginu um þessar mundir, bæði á vegum þess og annarra. Víkurhverfið heldur áfram að stækka en öll fjögur fjórbýlishúsin sem Búðingar ehf. eru með í smíðum eru risin, en þar af eru þrjú hús fyrir Brák íbúðafélag.

Víða framkvæmdir í gangi í Stykkishólmi - Skessuhorn