
Fengu ísferð í Bauluna
Undir lok maí var gleðidagur hjá börnunum á skólasvæði Varmalandsskóla, þegar Fríða í Baulunni bauð nemendum að koma við á heimleiðinni úr skóla og fá ís í Baulunni. Í fjöldamörg ár hefur það verið árviss viðburður í lok skólaársins í GBF á Varmalandi að stoppa á heimleiðinni í Baulunni og allir fá ís. Svo skemmtilega vildi til að einn af fyrrverandi nemendum Varmalandsskóla tók á móti hópnum og afgreiddi þau með ísinn. Það er alltaf spenningur að bíða eftir ísnum og einstaka sinnum hefur verið byrjað að spyrja, hvenær verði farið í ís í september. Meðfylgjandi myndir tók Brynjólfur í Hlöðutúni, einn af skólabílstjórunum og sendi Skessuhorni.