
Sumarbústaðaeigendur óska tafalausrar smölunar ágangsfjár
Félag lóðarhafa að Þórisstöðum II hafa óskað eftir því við Hvalfjarðarsveit að sauðfé sem nú er í landi Þórisstaða verði smalað tafarlaust. Vilja lóðarhafar meina að féð sé á beit innan girðingar m.a. á svæði sem skilgreint er sem vatnsverndarsvæði sem tengist vatnsbólum sem þjóna bæði sumarhúsabyggð og heimilum að Þórisstöðum. Vísa lóðarhafar til laga um hollustuhætti og mengunarvarnir þar sem fram kemur að tryggja beri aðgang að öruggu neysluvatni og koma í veg fyrir alla mögulega mengun á vatnsverndarsvæðum. Því liggi að þeirra sögn „mikið við að fénu sé tafarlaust komið burt,“ eins og segir orðrétt í erindi lóðarhafanna til Hvalfjarðarsveitar.