
Gríðarlega góð stemning var á meðan hljómsveitirnar léku listir sínar. Ljósmyndir: tfk
Sátan fór af stað með látum
Þungarokkshátíðin Sátan hófst í gær og það með látum. Það var hljómsveitin Gaddavír sem reið á vaðið og svo steig hver hljómsveitin á fætur annarri á stokk. Þakið ætlaði svo að rifna af íþróttahúsinu í Stykkishólmi þegar hljómsveitirnar Vader frá Póllandi og Brain Police trylltu lýðinn. Það var svo goðsagnakennda hljómsveitin Sororicide sem lokaði kvöldinu en sveitin fagnaði 35 ára starfsafmæli sínu og tilkynntu að þetta væru allra síðustu tónleikar sem sveitin héldi. Einnig voru mörg atriði utan hefðbundinnar dagskrár og nóg hægt að gera fyrir rokkþyrsta gesti. Allt fór vel fram og var ekki annað að sjá en að fólk skemmti sér prýðilega.