Myndin Draumar, konur og brauð verður sýnd á Arnarstapa

Heimilda kvikmyndin Draumar, Konur & Brauð verður sýnd í Samkomuhúsinu á Arnarstapa á Snæfellsnesi á annan dag hvítasunnu, mánudaginn 9. júní kl. 17:00. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir. Myndin fjallar um konur sem reka kaffihús á landsbyggðinni. Fimm kaffihús eru heimsótt og skyggnst er inn í líf kvennanna sem þau stofnuðu og reka og í myndinni er heyrt um drauma þeirra og dagdrauma. Myndin er þannig ferðalag tveggja ólíkra kvenna, sem heimsækja kaffinúsin tvinnast við sögur kaffihúsakvennanna ásamt þjóðsögum og minnum landsins. Kökukeppni og Sólstöðuhátíð sveitarinnar spila og sitt hlutverk. Myndin hefst á Hellnum og henni lýkur á Arnarstapa, í Samkomuhúsinu, þar sem Ólína Gunnlaugsdóttir rekur sinn veitingastað.

Myndin var frumsýnd í Bíó Paradís í apríl 2023 og verður á dagskrá RUV síðar á árinu. Hún tekur þátt í Kvikmyndahátíð í Seoul í Suður - Kóreu nú í ágúst. Myndin hefur hlotið nokkrar viðurkenningar þar á meðal í Glasgow á „Internationa Indie Film and Screenplay Festival“ í desember sl. fyrir „framúrskarandi framtak“ og þar var tónlistin einning tilnefnd  sem „BestaTónlist.“ Agnar Már Magnússon er höfundur stefja en einnig á Una Stefánsdóttir tvö frumsamin lög. Kvennakórinn Ljósbrá á Suðurlandi syngur lag Magnúsar Eiríkssonar Ástfangin í þér i útsetningu kórstjórans Ingibjargar Erlendsdóttur en Eygló Scehving syngur einsöng. Svanlaug Jóhannsdóttir söngkona syngur tvö lög í Suður-Amerískum stíl og leikur jafnframt aðalhlutverk ásamt Agnesi Eydal. Handritshöfundar eru Sigrún Vala Valgeirsdóttir og Svanlaug Jóhannsdóttir en þær leikstýra jafnframt.

Kaffihúsin sem koma við sögu eru: Gamla Fjós undir Eyjafjöllum, Heiða Björg Scheving, Kaffi Nesbær í Neskaupstað, Sigríður Þórbjörg Vilhjálmsdóttir, Frida Chocolate á Siglufirði, Fríða Björk Gylfadóttir, Kaffi Litlibær í Skötufirði, Sigríður Hafliðadóttir, Guðrún Fjóla Kristjánsdóttir og Samkomuhúsið á Arnarstapa, Ólína Gunnlaugsdóttir.

Myndin Draumar, konur og brauð verður sýnd á Arnarstapa - Skessuhorn