Alvarlegar athugasemdir vegna stofnunar líkamsræktarstöðvar

Sporthöllin ehf., sem bauð í rekstur líkamsræktarstöðvar að Jaðarsbökkum á Akranesi, gerir kröfu um að samningsgerð Akraneskaupstaðar við Laugar ehf. rekstrarfélag World Class um reksturinn verði stöðvaður. Jafnframt gera lögmenn Sporthallarinnar mjög alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð kjörinna fulltrúa og embættismanna Akraneskaupstaðar í aðdraganda málsins og úrvinnslu matsnefndar á þeim tveimur tilboðum er bárust í reksturinn. Þetta kemur fram í bréfi lögmanns Sporthallarinnar sem tekið var fyrir í bæjarráði Akraneskaupstaðar í gær. Þrátt fyrir alvarlegar athugasemdir hefur framkvæmdastjóri Sporthallarinnar ákveðið að gera ekkert frekar í málinu og segist reynslunni ríkari.

Alvarlegar athugasemdir vegna stofnunar líkamsræktarstöðvar - Skessuhorn