
Komið að landi fyrr í morgun.
Sóttu í nótt vélarvana bát
Upp úr klukkan fjögur í nótt barst sjóbjörgunarflokki Björgunarfélags Akraness útkall vegna vélarvana báts sem staddur var um þrjár sjómílur vestan við Akranes. Farið var á björgunarskipinu Jóni Gunnlaugssyni og báturinn dreginn að landi. Að sögn Ásgeirs Kristinssonar, hjá Björgunarfélagi Akraness, gekk aðgerðin vel. Hann gat þess jafnframt að þetta var tíunda útkallið sem félaginu berst undanfarna níu mánuði vegna vélarvana báta við Akranes eða á Faxaflóa. Nú síðast var það á föstudagskvöldið á Faxaflóa miðja vegu milli Akraness og Arnarstapa.