
Skúrinn trésmíðaverkstæði settur upp á Breið
Byrjað er að undirbúa að setja upp trésmíðaverkstæði á Akranesi, nærri Fab Lab Smiðju Vesturlands í nýsköpunarsetrinu Breið. Verkefnið er kallað Skúrinn. „Þar verður í boði aðstaða fyrir þennan hóp sem og aðra til að koma í Breið nýsköpunarsetur og vinna að trésmíðaverkefnum sínum í góðum félagsskap. Að auki verður boðið upp á kennslu í þrívíddarprentun og fleira fyrir hópinn sem mun fara af stað innan tíðar,“ segir í frétt Breiðar.