Fyrsta skemmtiferðaskipið, Amera, kom til Grundarfjarðar í dag. Ljósm. tfk

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom í dag

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom í dag til Grundarfjarðar. Vegna veðurs lagðist það þó ekki að bryggju fyrr en í hádeginu í dag. Töluverður samdráttur verður í sumar á komu skemmtiferðaskipa til Stykkishólms og Flateyjar, en í Grundarfirði fjölgar fjölgar þeim, þrátt fyrir að borið hafi á afbókunum frá því boðað 2.500 króna innviðagjald á hvern farþega var kynnt í haust. Ekkert skemmtiferðaskip er væntanlegt á Akranes í sumar samkvæmt áætlun Faxaflóahafna.

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom í dag - Skessuhorn