Fréttir
Helena Ólafsdóttir. Ljósm. facebook

Helena ráðin íþrótta- og tómstundafulltrúi Grundarfjarðarbæjar

Á fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðar 28. apríl sl. voru lagðar fram þær umsóknir sem bárust um starf íþrótta- og tómstundafulltrúa, sem auglýst var 22. mars síðastliðinn. Umsóknarfrestur rann út 2. apríl en alls bárust níu umsóknir. Vinnvinn ráðningar og ráðgjöf voru fengnar til ráðgjafar við úrvinnslu og mat umsókna um starfið. Ráðningarferlið byggði á viðurkenndum aðferðum við mat á umsóknum, viðtölum og raunhæfu verkefni. Bæjarstjórn hafði skipað tvo bæjarfulltrúa til að taka þátt í ráðningarferli, viðtölum við umsækjendur og mat á umsóknum.