Fréttir
Væntanlegir iðngarðar á Hvanneyri verða byggðir í nágrenni við lóð Jörva. Ljósm. mm

Tillaga að nýju húsnæði á Hvanneyri fyrir slökkvilið

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 16. apríl sl. tillögu að nýju húsnæði fyrir Slökkvilið Borgarbyggðar á Hvanneyri. Í henni felst að gerður verður samningur um leigu á liðlega 280 fermetra rými í nýju og vel búnu húsnæði sem mun leysa af hólmi eldra og mun minna húsnæði.