
Sveinn og Ágústa með nýfæddan son sinn þegar blaðamaður kíkti í heimsókn eftir heimkomuna. Ljósm. tfk
Flýtti sér í heiminn við Dalsmynni
Ágústa Einarsdóttir og Sveinn Bárðarson í Grundarfirði vöknuðu snemma morguns mánudaginn 21. apríl síðastliðinn þar sem Ágústa hafði misst legvatnið en hún var þá gengin nær fulla meðgöngu með barn þeirra. Þau höfðu strax samband við fæðingadeildina á Akranesi og boðuðu komu sína. Ekki var lagt af stað í neinum flýti heldur fór Ágústa í sturtu, tók til dótið sitt og opnaði Líkamsræktina sem hún rekur áður en haldið var af stað. Hún var byrjuð að finna samdrætti þegar þarna var komið við sögu. Svo þegar allt var klárt var haldið áleiðis á Akranes.